Lög Technis


I. kafli Nafn og tilgangur

1.gr.
Félagið heitir Technis, félag iðn- og tæknifræðinema við Háskólann í Reykjavík. Á ensku skal félagið nefnast Technis – Technical and Engineering student association of Reykjavík University. Aðsetur þess er í Háskólanum í Reykjavík og varnarþing er í Reykjavík.

2.gr.
Tilgangur félagsins er 1. að gæta hagsmuna og velferðar iðn- og tæknifræðinema við Háskólann í Reykjavík; 2. að taka þátt í samvinnnu akademískt menntaðra manna og stuðla að mótun tæknisviðs Tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík.

3.gr.
Starfstími Technis og reikningsár er á milli aðalfunda.


II. kafli Stjórn félagsins

4.gr.
Stjórn skal skipuð sex félagsmönnum. Kosningar til stjórnar skal auglýsa á tryggilegan hátt 2 vikum, hið minnsta, fyrir boðaðan aðalfund. Stjórn skal skipuð formanni, deildarráðsfulltrúa sem er einnig varaformaður, gjalkera, nemendaskólafulltrúa, upplýsingafulltrúa sem einnig er ritari og skemmtanastjóra.

5.gr.
Stjórn Technis stýrir málefnum félagsins með þeim takmörkunum sem lög þessi setja.Hún tekur ákvarðanir um starfsemi félagsins og er ábyrg fyrir fjárreiðum og skuldbindingum gagnvart öðrum aðilum. Formaður og í forföllum hans varaformaður, hefur oddaatkvæðisrétt á stjórnarfundum.

6.gr.
Formaður Technis ritar firma félagsins. Formaður og gjaldkeri hafa prókúru félagsins.

7.gr.
Formaður, í forföllum hans varaformaður, kemur fram fyrir hönd Technis innan sem utan Háskólans í Reykjavík.

8.gr.
Formaður, í fjarveru hans varaformaður, stjórnar fundum stjórnar. Í fjarveru þeirra stjórnar einhver stjórnarmanna fundi samkvæmt ákvörðun hverju sinni.

9.gr.
Deildarráðsfulltrúi situr sem fulltrúi tæknifræðinema á deildarfundum Tækni- og verkfræðideildar.

10.gr.
Ritari, í fjarveru hans einhver stjórnarmanna, ritar fundargerðir stjórnarfunda. Ritari hefur umsjón með heimasíðu félagsins, svo og umsjá aðsendra bréfa. Ritari skal vera tengiliður Technis við önnur félög iðn og tæknifræðinema, innlend sem erlend.

11.gr.
Gjaldkeri ber ábyrgt á bókhaldi félagsins. Gjaldkeri undirbýr fjárhagsáætlun félagsins eitt ár fram í tímann og leggur hana fyrir stjórn til samþykktar fyrir septemberlok ár hvert. Hann skal einnig leggja fyrir stjórnina ársreikning á aðalfundi félagsins.

12.gr.
Nemendaskólafulltrúi sér um kynningar og fundi sem viðkoma nemendum, hvort sem kynningar eða námskeið á vegum fyrirtækna eða einstaklinga.

13.gr.
Skemmtanastjóri skipuleggur vísindaferðir og uppákomur að ýmsu tagi. Skemmtanastjóri verður í nánu sambandi við önur fél-g og heldur samkomur í samstarfi við þau. Skemmtanastjóri getur skipað sér skemmtinefnd ef samkoman krefst þess en með samþykki stjórnar Technis.

14.gr.
Reikningum félagsins skal lokað 2 sólarhringum fyrir boðaðan aðalfund.

15.gr.
Skipunartími stjórnar er á milli aðalfunda.

16.gr.
Stjórn skal halda fundi eigi sjaldnar en einu sinni í mánuði. Formaður boðar til stjórnarfunda. Stjórnarmeðlimir geta óskað þess að boðað verði til stjórnarfundar.

17.gr.
Meirihluti atkvæða ræður á stjórnarfundi. Stjórn telst ályktunarbær, ef meirihluti stjórnarmeðlima situr fund.

18.gr.
Stjórn félagsins skal leita leiða til fjármögnunar félagsins.

19.gr.
Stjórn félagsins er heimilt að gera samstarfssamning við Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík um fjármál félaganna, samninga við önnur hagsmunafélög stúdenta og umboð til bindandi samningsgerðar í nafni Technis.

20.gr.
Stjórn félagsins getur boðað til almenns félagsfundar til að ræða málefni Technis við félagsmenn. Formaður Technis opnar fundinn og tilnefnir fundarstjóra sem stýrir umræðum. Stjórn er skylt að boða til almenns félagsfundar ef 10% félagsmanna óskar þess að með skriflegri beiðni til stjórnar félagsins. Félagsfundir skulu auglýstir tryggilega með sjö daga fyrirvara hið minnsta.

21.gr.
Komi fram tillaga um vantraust á stjórn eða einstaka stjórnarmeðlimi skal stjórn boða til félagsfundar, með tryggilegum hætti, innan tveggja vikna frá þeim tíma er tillagan barst til stjórnar. Fundurinn er lögmætur ef tveir þriðju hlutar félagsmanna mæta. Tillagan hlýtur samþykki ef þrír fjórðuhlutar fundarmanna greiða henni atkvæði. Hljóti tillaga samþykki skal fundarstjóri boða til aukafundar innan tveggja vikna, með viku fyrirvara hið minnsta, með tryggilegum hætti. Á þeim fundi skal kjósa bráðabirgðastjórn eða stjórnarmeðlim, sem gegnir embætti fram að næsta aðalfundi. Meirihluti atkvæði ræður kosningu. Framboð til stjórnar skal berast fundarstjóra fyrir upphaf fundar.


III. kafli Aðalfundur og kosningar

22.gr.
Aðalfundur hefur með æðsta vald í málefnum félagsins. Aðalfund skal halda í mars ár hvert. Til fundarins skal boða með auglýsingu á tryggilegan hátt, með viku fyrirvara hið minnsta, og er hann þá lögmætur. Tillaga hlýtur samþykki ef meira en helmingur fundarmanna greiðir henni atkvæði.

23.gr.
Mál þessi skulu tekin til meðferðar á aðalfundi :

1. Stjórn félagsins gerir grein fyrir störfum sínum.

2. Stjórn félagsins leggur fram ársreikninga félagsins.

3. Tilkynnt skal um úrslit kosninga.

4. Lagabreytingar

5. Önnur mál

24.gr.
Kosningar í embætti Technis skulu fara fram minnst 4 virkum dögum fyrir aðalfund.

25.gr.
Allir félagsmenn eru kjörgengir og hafa kosningarétt. Framboð skulu vera skrifleg og undirrituð eða staðfest í gegnum skólanetfang frambjóðenda. Auglýsa skal eftir framboðum minnst 20 dögum fyrir aðalfund. Framboðsfrestur rennur út 10 dögum fyrir aðalfund. Kosið er í embætti stjórnar Technis.

26.gr.
EF frambjóðandi er einn í framboði er hann sjálfkjörinn í það embætti. EF ekki hefur hlotist lögleg kosning í öll embætti, skal nýkjörin stjórn auglýsa eftir framboðum í laus embætti, ekki síðar en 10 dögum eftir aðalfund. Að öðru leiti skal framkvæmd kosninganna fara eftir 23.gr.

Hafi, eftir þessa síðari umferð kosninga, ekki hlotist lögleg kosning í öll embætti, skal nýkjörin stjórn skipa í laus embætti úr hópi félagsmanna.

27.gr.
Kjörstjórn sem og yfirkjörstjórn skal hvor um sig skipuð þrem óháðum aðilum. Stjórn Technis skal auglýsa meðal félagsmanna sinna eftir aðilum til að gegna störfum þessara stjórna, eigi síðar en sex vikum fyrir aðalfund. Stjórn Technis skipar í kjörstjórnir þessar úr hópi þessara aðila. Hvorki kjörstjórn né yfirkjörstjórn njóta kjörgengis.

Hlutverk kjörstjórnar er að undirbúa og sjá um framkvæmd kosninganna. Hlutverk yfirkjörstjórnar er að taka við kærum á hendur starfandi kjörstjórn, sem og að úrskurð í ágreiningmálum er varðar kjörstjórn.

28.gr.
Kosningar skulu fara fram með rafrænum hætti og skal ritari í samráði við kjörstjórn sjá til þess að öllum kröfum um öryggi og skilvirkni sé fullnægt. Kosningar skulu vera leynilegar.

29.gr.
Kærur vegna kosninga skulu berast kjörstjórn skriflega eigi síðar en viku eftir kosningar. Úrskurður kjörstjórnar skal liggja fyrir eigi síðar en 7 dögum eftir að kærufrestur til hennar rennur út. Úrskurði kjörstjórnar að kosningarnar hafi brotið gegn ákvæðum laganna, þá skulu aukakosningar fara fram eigi síðar en 10 dögum eftir að úrskurður kjörstjórnar liggur fyrir. Kærur á hendur kjörstjórn skulu berast yfirkjörstjórn skriflega, eigi síðar en 3 virkum dögum eftir að úrskurður kjörstjórnar lá fyrir og skal yfirkjörstjórn úrskurða í þeim kærumálum. Úrskurður yfirkjörstjórnar skal liggja fyrir eigi síðar en 3 virkum dögum efir að kærufrestur til hennar rennur út og er úrskurður hennar endanlegur. Bæði kjörstjórn og yfirkjörstjórn geta sótt um frest til stjórnar Technis til að kveða upp úrskurði sína. Stjórn Technis er heimilt að veit hvorri stjórn um sig frest í allt að 3 virka daga til að úrskurða í málinu, enda liggi því til grundvallar mjög sterk rök.

30.gr.
Þrátt fyrir ákvæði 25.gr.
er stjórn Technis heimilt að fela kjörstjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík stjórn kosninganna. Sé það gert falla greinar 25-27 úr gildi.

31.gr.
Ef engar kærur berast vegna kosninga til embætta Technis fer fráfarandi stjórn Technis með stjórn félagsins í eina viku eftir kosningar, en að öðrum kosti þar til öll kærumál hafa verið afgreidd.


IV. kafli Félagsmenn

32.gr.
Allir þeir sem stunda nám í iðn- eða tæknifræði við Háskólann í Reykjavík njóta aðildar að félaginu. Nemendur á frumgreinasviði njóta einnig aðildar ef þeir óska eftir því.

33.gr.
Stjórn Technis er heimilt að ákvarða félagsgjöld. Þá er stjórn heimilt að veita þeim sem greiða félagsgjöld fríðindi umfram aðra. Stjórnarmeðlimir skulu greiða félagsgjöld það ár sem þeir sitja í stjórn. Félagsgjöld Technis fást ekki endurgreidd.

34.gr.
Stjórn félagsins er heimilt að víkja félagsmanni úr félagi vegna ámælisverðrar háttsemi

35.gr.
Stjórn félagsins er heimilt að útnefna heiðursfélaga og verndara Technis meti hún tilefni til.

36.gr.
Hver bekkur iðn- og tæknifræðinema skal tilnefna bekkjarformann úr sínum röðum til þess að taka við athugasemdum frá nemendum síns bekkjar. Stjórn Technis skal sjá til þess að bekkjarformenn séu kosnir eigi síðar en 1.október ár hvert.

37.gr.
Deildarráðsfulltrúi er tengiliður bekkjaformanna við deildarráð og stjórn Technis.


V. kafli Félagsdeildir

38.gr.
Stjórn félagsins getur óskað eftir þátttöku félagsmanna í starfsemi í þágu þess og skipað nefndir ef þess gerist þörf.


VI. kafli Breytingar á lögum

39.gr.
Lögum félagsins má breyta á aðalfundi eða sérstaklega boðuðum fundi með viku fyrirvara, hið minnsta, og þurfa tveir þriðju hlutar fundarmanna að greiða atkvæði með lagabreytingunni til þess að hún taki gildi. Stjórn er skylt að boða til lagabreytingar ef 10% félagsmanna óskar þess. Þær lagabreytingar sem óskað er eftir skulu berast stjórn um leið og lagabreytingafundar er óskað. Stjórn er skylt að auglýsa lagabreytingatillögur með skilvirkum hætti um leið og fundur er boðaður. Stjórn er heimilt að boða til slíks fundar að eigin frumkvæði. Allir félagsmenn hafa rétt til að koma með tillögur að lagabreytingum á lagabreytingafundi og aðalfundi. Lagabreyting öðlast gildi frá þeim tíma þegar hún er samþykkt á aðalfundi eða öðrum lagabreytingafundi.

40.gr.
Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið, skal hún þá sæta sömu meðferð og tillaga lagabreytinga, skv. 39.gr.

41.gr.
Eignir félagsins ganga til Tækni- og verkfræðideildar HR til varðveislu þegar félaginu er slitið. Ef iðn- og tæknifræðinemar stofna annað félag, telst það arftaki Technis og fær því eignir þess.

42.gr.
Lög þessi skulu ætíð birt á heimasíðu Technis þar sem öllum félagsmönnum er heimilaður aðgangur.

43.gr.
Lög þessi öðlast gildi þann 05.02.2010.



Lög þessi voru samþykkt á lagabreytingafundi 19.01.2010.


Stjórn Technis


___________________________________________

Benedikt Bergmann Arason, formaður


___________________________________________

Birgitta Rán Ásgeirsdóttir, deildarráðsfulltrúi/varaformaður


___________________________________________

Sigurður Rúnar Birgisson, gjaldkeri


___________________________________________

Ragnhildur Ósk Valtýsdóttir, skemmtanastjóri


___________________________________________

Gunnlaugur Steinar Guðmundsson, ritari


___________________________________________

Ívar Örn Arnarsson, nemendaskólafulltrúi


  • Muna?

Ekkert á döfinni