Núna á föstudaginn 29. janúar er dúkað fyrir aðra vísindaferð, en hún verður í boði Eflu, mæting við skúrana hjá Tónlistarhúsinu Hörpu kl. 16:00. Skráning hefst þriðjudaginn 26. jan klukkan 15:00 og lýkur fimmtudaginn 28. jan klukkan 16:00. 18 sæti verða í boði.
Eins og alþjóð veit eru strákarnir okkar að keppa á EM í handbolta sem fer fram í Austurríki. Núna eru þeir komnir inn í milliriðla á mótinu og spila þar 3 leiki í vikunni. Skólinn er búinn að koma til móts við okkur og hefur lánað okkur stofur til að horfa á leikina. Leikirnir byrja á eftirfarandi tímum og verða sýndir í eftirfarandi stofum:
Mánudagur 25.01.2010 STOFA M1.01
15:00 Ísland - Króatía
Þriðjudagur 26.01.2010 STOFA M1.16
15:00 Ísland - Rússland
Fimmtudagur 28.01.2010 STOFA - M1.08 - Fönix 2
15:00 Ísland - Noregur
Hvetjum við að sjálfsögðu flesta til að mæta og styðja við bakið á stákunum okkar :)
Við í Technis ætlum að skella okkur í bíó núna á morgun miðvikudaginn 20. jan, það opnar fyrir skráningu klukkan 15:00 í dag þriðjudaginn 19.jan. Það eru 10 miðar í boði og það er því um að gera að vera klár klukkan 15:00 og skrá sig inn ef þið hafið áhuga ;) Myndin verður sýnd í smárabíói og hefst klukkan 20:00, miðarnir verða afhentir þeim sem skrá sig í smárabíói eða geta haft samband við Benedikt í síma 867-0601
Teiknimyndin Cloudy with a Chance of Meatballs var 2 vikur á toppnum í Bandaríkjunum, fékk frábæra dóma og aðsókn ! Bill Hader, Anna Faris, Neil Patrick Harris, James Caan, Mr. T ofl ljá persónum raddir sínar og fara á kostum í einni fyndnustu teiknimynd síðari ára. Myndin er einnig tilnefnd til Golden Globe verðlaunanna sem Besta teiknimynd síðasta árs.
Frumkvöðlakeppni Innovit er tækifæri fyrir frumkvöðla til að öðlast reynslu, þekkingu og tengslanet til að koma sínum hugmyndum á framfæri og vinna að stofnun nýrra og öflugra fyrirtækja á Íslandi.
Allir nemendur við Háskólann í Reykjavík geta tekið þátt í keppninni sér að kostnaðarlausu þar sem HR er samstarfsskóli verkefnisins. Aðrir þurfa að greiða rúmar 50.000 krónur fyrir námskeið vilji þeir taka þátt. Nemendur senda inn hugmynd á www.gulleggid.is -þátttakendur fá svo aðstoð við að búa til fullmótaða viðskiptaáætlun úr þeirri hugmynd með aðstoð sérfræðinga, meðal annars frá Innovit, KPMG, Fulltingi lögfræðiþjónustu og ýmsum afreksmönnum úr íslensku atvinnulífi.
Keppnin er haldin að fyrirmynd sams konar keppni við MIT háskóla í Bandaríkjunum og sambærilegra keppna á Norðurlöndunum sem kallast Venture Cup.
I. Hluti: Skráning og 1-2 blaðsíðna ágripi um viðskiptahugmynd er skilað inn. Skilafrestur: 20. Janúar.
II. Hluti: Fullmótaðri viðskiptaáætlun er skilað inn. Skilafrestur: 8. Mars.
III. Hluti: Rýnihópur sérfræðinga velur 10 bestu viðskiptaáætlanirnar að því gefnu að þær standist gæðakröfur Innovit. Þátttakendur kynna þær fyrir dómnefnd og fjárfestum. Kynningar fara fram 10. apríl 2010.
Verðlaun eru veitt fyrir tíu bestu viðskiptaáætlanirnar og heildarverðmæti vinninga er metið yfir 3.000.000 íslenskra króna