Hæ allir! Nördavikan er keppni á milli deilda líkt og Ólympíuleikarnir. Tveir riðlar (2x3lið) hvert lið keppir 1x við bæði liðin í sínum riðli, sigurvegarar riðlanna keppa um stigin. Það félag sem hefur flestu stigin eftir fimmtudaginn hreppir nördabikarinn!!!
Skráningin er hafin á innranetinu. Upplýsingar um í hverju er keppt, hvar og hvenær er hægt sð skoða í ”atburðirnir mínir”. Mortal kombat hefur verið skipti út fyrir Quake3.
Nú á LAUGARDAGINN 20. mars er HR-dagurinn. Hefja á daginn á því að skella sér í hressandi sjósund!! Sundið á að byrja klukkan 11 og spurningin er hvaða deild verður með besta mætingu (kennarar+nemendur). Hver kemur í frumlegasta/flottasta/fyndnasta búningnum og sýnir mestu baráttuna(metið út frá hljóðstyrk)?
Þannig ef ÞÚ er sjóhundur og kannt að synda lætur þú þig ekki vanta í nauthólsvíkina :) Potturinn verður svo að sjálfsögðu opinn á eftir…