Nú líður senn að skólastarti og fólki farið að hlakka til að byrja í skólanum og hætta í þessari hundleiðinlegu vinnu. Allavega finnst okkur í stjórninni það. Fyrst á dagskrá hjá okkur er nýnemaútilegan fræga sem verður glæsilegri núna en nokkurn tíman fyrr. Nýnemar geta hlakkað sérstaklega til, þar sem við ætlum að halda sérstakan glaðning fyrir þá.
Allavega vildum við sýna að það væri líf í tuskunum hér á síðunni og munum við reglulega vera með fréttir af viðburðum og fleiru hér á síðunni. Ef einhver vill koma með hugmyndir að skemmtilegu uppátæki, beiðnir um námskeið eða hvað sem er þá endilega kommenta hér á síðuna eða hafa samband við okkur á maili, síma eða hóa í okkur á göngum skólans.
P.S til að minna á hversu gaman var í síðustu nýnemaútilegu þá eru hér nokkrar myndir