Nýnemadagar fyrir nemendur sem eru að hefja grunnám og nám í frumgreinum við Háskólann í Reykjavík haustið 2010 verða haldnir dagana 17. og 18. ágúst í húsakynnum skólans í Nauthólsvík.
Þriðjudaginn 17. ágúst er boðið upp á léttan morgunmat kl. 8:30 í Sólinni (miðrými byggingarinnar), dagskrá hefst svo með skólasetningu kl. 9:00 og lýkur kl. 12:15.
Miðvikudaginn 18. ágúst hefst dagskrá kl. 9:00 og lýkur með grillveislu í boði Stúdentafélags HR kl 12:30.
Föstudaginn 14. maí ætlum við að halda magnað próflokadjamm / bjórkvöld á Hressingarskálanum. Bjórinn byrjar að freyða klukkan 20.00 og mun renna ljúflega niður fram eftir kvöldi.
Allir að mæta með félagsskirteini til staðfestingar.
Þetta kvöld verður goðsagna, bíðið eftir því, kennt ...
Nú var KFC í Fossvogi að bætast í fríðan flokk fyrirtækja sem veita meðlimum Technis afslátt. Allar máltíðir þeirra á 899 kr. gegn framvísun skírteinis.
Minnum einnig á alla afslætti sem standa okkur til boða sem má sjá í afsláttarlinknum hér fyrir ofan.