Það styttist í próflok hjá ykkur með hverjum degi sem líður.
Vonandi hefur öllum gengið vel, þetta er svaka vinna en ég veit það af eigin raun þar sem ég byrjaði mitt nám við HR á frumgreinadeildinni. Eins og þið hafið tekið eftir þá hafa Birgitta og Harpa verið að spjalla við ykkur um gleðskap til að fagna próflokum hjá ykkur. Þær spjalla betur við ykkur núna í byrjun vikunnar til að sjá betur hvort fólki langar ekki að fagna saman. Ef þið hafið einhverjar uppástungur eða spurningar þá ekki hika við að koma ykkur í samband við stelpurnar og munið að skrá ykkur á miðann sem er uppá töflu inní heimastofunum ykkar.