Eftirfarandi frétt var sett inn á www.mbl.is þann 19.mai 2009
Landnemar í Öskjuhlíð
„Þetta er á vissan hátt landnám nemendanna í Öskjuhlíðinni í tengslum við skólann“ segir Björn Guðbrandsson, arkitekt og kennari við Háskólann í Reykjavík, spurður um 10 skála sem nemendur við HR hafa reist í Öskjuhlíð skammt frá þar sem ný háskólabygging rís.
Björn segir að nemendurnir hafi fengið það verkefni að hanna skálana og reisa þá úr endurnýttum byggingarefnum. Tilgangurinn sé fyrst og fremst að nemendurnir átti sig á því hvað sé falið í hönnunarferlinu í heild.
„Þau læri ekki bara inn á afmarkaða kima, eitt fagsvið, heldur að þau skilji heildina og skilji hvernig fagsviðin vinna saman, t.d. arkitektúr og byggingatæknifræði,“ segir Björn.
Alls tóku 40 nemendur, sem var skipt í 10 hópa, þátt í verkefninu, en skálarnir voru reistir í gær.
Það fer hins vegar hver að verða síðastur að skoða skálana sem verða teknir niður síðdegis í dag.
Fréttin inniheldur svo myndskeið sem má nálgast hérna:
Jæja krakkar mínir, við erum búin að ákveða hvernig við ætlum að hafa þetta.
Við ætlum semsagt að hittast á Prikinu en við eigum efri hæðina fyrir okkur það kvöld.
Mæting er klukkan 21.00 og öllum nemendum frumgreinasviðs er boðið. Hinsvegar þeir sem ekki eru meðlimir Technis þurfa eingöngu að greiða 500kr.- til að koma og njóta stunda með okkur :)
Mjöður mun verða í boði Technis fram eftir kvöldi en eftir það verða háskólatilboð á barnum á bjór og skotum.
Við munum vera með lista yfir greiðandi meðlimi á staðnum og rukka þá sem ekki eru félagsmenn.
Við óskum ykkur öllum góðs gengis á seinasta sprettinum í prófunum og hlökkum til að hitta ykkur sem flest á föstudagskvöldinu.
Föstudaginn 8.mai var farið í vísindaferð í Símann þar sem fólk komst að því að Síminn er ekki bara í því að rukka okkur fyrir að hringja í hvort annað og halda uppi interneti fyrir okkur. Alveg magnað hverju þeir hafa áorkað og hlökkum við að sjálfsögðu til að fara aftur til þeirra í framtíðinni.
Eftir vísindaferðina var ferðinni heitið í Vikingsheimilið þar sem græjurnar fengu að finna fyrir því og dansgólfið notað óspart. Kvöldið heppnaðist mjög vel og við þökkum öllum kærlega sem skemmtu sér með okkur, fyrir utan að við bjuggumst ekki alveg við því að verkfræðinemarnir myndu drekka svona mikið og þess vegna kláraðist barinn um kl: 23.00 :)
Við þökkum samt fyrir okkur og hlökkum til áframhaldandi skemmtanahalds og samstarfs við önnur nemendafélög.
Með bestu kveðju,
Nýja fallega stjórnin :)
Ps. Myndirnar koma inn í byrjun viku þegar búið er að ritskoða þær.