Technis býður 6 heppnum meðlimum miða á myndina Zombieland. Hér á eftir fylgir stutt lýsing á myndinni.
Toppmyndin í Bandaríkjunum er hin drepfyndna (í orðsins fyllstu merkingu) ZOMBIELAND þar sem Woody Harrelson, Jesse Eisenberg (Adventureland), Emma Stone (Superbad) og Abigail Breslin (Little Miss Sunshine) fara á kostum við að losa heiminn við uppvakninga. Myndin hefur komið virkilega á óvart vestanhafs og fengið ótrúlega góða dóma.
1. 1.Ekki er leyfilegt að mæta á atburði Technis ef maður er ekki á skráningarlista (ef það á við).
2. 2.Skylda er að afskrá sig ef maður kemst ekki í ferð sem maður er skráður í. Þetta þarf að gerast í seinasta lagi um hádegi sama dag og ferð er með því að ýta á “skrá úr ferð” takkann. Ef eitthvað kemur uppá eftir þann tíma er líka hægt að senda okkur tölvupóst á technis@ru.is eða hringja í einhvern stjórnarmeðlim.
Þetta er gert til þess að það mæta ekki of margir og einnig til þess að leyfa fólkinu á biðlistanum að komast í ferðirnar.
Ef einhver gerir eitthvert ofantalinna, mun sá hinn sami verða skráður á “svarta listann” sem þýðir að hann/hún megi ekki mæta á næstu 2 atburði hjá Technis.
Svo vorum við að redda 10 auka sætum í vísindaferðina til Marel, svo vonandi komast allir með sem viljaJ
Af gefni tilefni viljum við minna ykkur fallega fólk á að það kostar inná Októberfest. Við töluðum við þau sem eru að halda hátíðina og fengum eftirfarandi upplýsingar:
Það kostar 2000 kr inná föstudagskvöldið. Ef að fólk kaupir sér armband á 2500 þá gildir það inná alla þrjá daganna og bjórinn er 100 kr ódýrari alla helgina :) Miðasala á Októberfest hefst á þriðjudag á Háskólatorgi og fleiri byggingum Háskólans og stendur hún fram á föstudag. Verður hún opin alla dagana frá 11:30 - 13:30
Viljum við hvetja alla til að tryggja sér armband í forsölu því uppselt hefur orðið síðastliðin tvö ár.
Einnig viljum minna á að allar upplýsingar varðandi hátíðina eru inná oktober.is - nú er hún beintengd við Twitter svo við update-um hana á klukkutíma fresti :-)
Þannig það þarf engan stærðfræðiséní til að sjá hvað er að borga sig í þessu, sérstaklega ef fólk við taka sveitt ball með Skímó á laugardeginum. Endilega skoðið þetta vel því auðvitað er skemmtilegast að við förum sem flest þangað eftir Vísó í Marel :)
Föstudaginn 9. október mun Marel taka á móti okkur þar sem þeir munu segja okkur frá ýmsu sem þau eru að fást við, ganga hring um fyrirtækið og að lokum bjóða veitingar. Mæting er í höfuðstöðvar Marel, Austurhrauni 9 á iðnaðarsvæðið í Garðabæ á móti IKEA stundvíslega klukkan 16:50.
Að því loknu verða rútur sem ferja okkur á Októberfest fyrir utan HÍ þar sem léttklæddar þýskar stelpur munu bera fram öl.
Skráning hefst þriðjudaginn 6. okt klukkan 13:00 á www.techn.is.