Föstudaginn 30. október verður hið árlega Grímu/Halloween ball HR haldið á Broadway. Í fyrra heppnaðist ballið í alla staði mjög vel og margir vilja meina að ballið hafi verið langskemmtilegasti atburður síðasta árs. Ballið er að sjálfsögðu fyrir allar deildir HR og miðaverð er 1000 kr. Miðasala mun hefst á þriðjudaginn 27.október í Ofanleiti.
Áfengi verður selt á ballinu og að sjálfsögðu verður áfengisverði
stillt í hóf. Verðlaun verða veitt fyrir besta og versta búninginn.
Gegn framvísun miðans fæst 10% afsláttur af öllum vörum í
Partý búðinni !!!!
Miðasala verður á morgun hjá okkur á bakkanum,
miðvikudaginn 28.október við lyftuna " lige som vanligt " :)
Cash only !
Höldum brjálað partý og skemmtum okkur fáránlega vel á grímuballinu :D
Föstudaginn 23 október verður farið í Atlantsolíu með Lögréttu og Atlas. Mæting er stundvíslega klukkan 16:50 við Lónsbraut 2 í Hafnarfirði. Að því loknu kemur rúta sem ferjar okkur á Hverfisbarinn þar sem fjörið heldur áfram.
Skráning hefst á morgun, miðvikudaginn 21. okt., klukkan 13:00 og einungis eru 20 sæti í boði fyrir Technis.
Minni enn og aftur á að það er skylda að skrá sig úr ferð ef maður kemst ekki.
Senn líður að útgáfu veglegs háskólablaðs á vegum nemenda í HR og eitt af markmiðum blaðsins er að gefa nemendum skólans tækifæri til þess að sýna hvað í þeim býr. Við ætlum að halda ljósmyndakeppni og munu valdar myndir birtast í blaðinu. Besta myndin að mati dómefndar mun svo hljóta 10.000 króna gjafabréf frá Levi's í verðlaun. Blaðið verður gefið út í talsvert stóru upplagi og er þetta því frábær vettvangur til þess að koma nafni sínu og hæfileikum á framfæri. Við hvetjum þess vegna alla til þess að taka þátt óháð reynslu eða tækjabúnaði.
Reglur keppninnar eru einfaldar.
Eingöngu stafrænar myndir koma til greina því miður, en auðvitað getið þið skannað inn filmu myndir. Að sjálfsögðu má ekki senda inn myndir eftir aðra ljósmyndara.
Helstu upplýsingar þurfa að fylgja með ljósmyndinni, þ.e. nafn ljósmyndara (netfang og námsbraut), nafn myndar, tími og staður (t.d. Júní 2008, Gróttu á Seltjarnarnesi) og ekki er verra ef þið hafið kannski smá lýsingu á myndefninu með.
Myndvinnsla t.d. með Photoshop eða Lightroom er leyfð en telji dómnefnd myndina of breytta áskilur hún sér rétt til þess að dæma hana úr leik. Gott er að hafa í huga að þetta er fyrst og fremst ljósmyndakeppni.
Myndirnar þurfa ekki að hafa verið teknar innan þess frests sem hér er gefin, þær mega vera eldri. Við biðjum hinsvegar fólk að senda einungis inn myndir sem ekki hafa birst áður (nema t.d. á síðum eins og flickr).
Föstudaginn 16.október munum við fara í vísindaferð í Ístak !
Við ætlum að byrja á því að hittast í nýbyggingu HR kl 16.00 og mun kynningin byrja á slaginu 16.10. Því er mjög mikilvægt að mæta á réttum tíma ! Við munum skottast um vinnustaðinn og fá að sjá hvernig skólinn mun líta út þegar hann er tilbúinn. Eftir skoðunarferðina brunum við beint í höfuðstöðvar Ístak að Engjateig 7 og munum við fá kynning á fyrirtækinu.
Ekki verður rúta úr þessari vísindaferð en þeim sem langar að halda áfram að skemmta sér er bent á að koma á Hressó með okkur þar sem verðið á bjórnum er svo gott þar. Munið eftir Technis kortunum ykkar til að fá afsláttinn á Hressó og Bjarna Fel.
Allir eru rosalega spenntir að sjá hvernig þetta mun allt koma til með að líta út og því er um að gera að vera tilbúinn á skráningartakkanum í hádeginu á slaginu kl: 12.00 þriðjudaginn 13.október á www.techn.is .
Ferðin mun bókað fyllast á nokkrum mínútum þar sem mikill áhugi er fyrir þessari ferð !!
Minnum aftur á mikilvægi þess að skrá sig úr ferðunum ef maður kemst ekki. Nú þegar eru komnir nokkrir aðilar á "svarta listann" og eiga þeir því ekki kost á því að koma í næstu 2 ferðir Technis.