.

Vísó í Mannvit!!

Category: Fréttir
Published on Monday, 13 February 2012

Næstkomandi föstudag verður Vísindaferð í Mannvit !!!

Mæting að Grensásvegi 1(horni Grensásvegar og Suðurlandsbrautar) kl.16.45. Kynningin byrjar stundvíslega kl. 17.00 og endar kl.19.00. Fólk er oft að villast á þessu svæði því Mannvit er með 4 skrifstofur á þessu svæði. Leggið tímanlega af stað til að vera örugglega mætt áður en kynning hefst kl.17.00.

Sjá nánar á Googlemaps:

http://ja.is/kort/#q=index_id:1235541&x=360186&y=406557&z=10

Þetta er ein af skemmtilegustu vísindaferðum sem farið verður í og eru aðeins 50 sæti í boði.

Mannvit verkfræðistofa er stærsta ráðgjafarfyrirtæki landsins á sviði verkfræði og tækni. Mannvit byggir á grunni þriggja verkfræðistofa sem stofnaðar voru á sjöunda áratug síðustu aldar: Hönnunar hf. (1963), Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns hf. (1963) og Rafhönnunar hf. (1969). Tvö fyrstnefndu fyrirtækin sameinuðust í fyrirtækið VGK-Hönnun 2007 og nú hefur Rafhönnun bæst í.

Kv. Stóra T

 

Joomla 1.6 Templates designed by Joomla Hosting Reviews