.

Dj Neil Armstrong (New York) á Vegamótum!

Category: Fréttir
Published on Friday, 11 November 2011

Fáranlega gott partý á Vegamótum í kvöld kl 23.00

Dj Neil Armstrong (New York) verður að spila á Vegamótum!
(Former tour dj JAY-Z)

Armstrong er einn af stofnendum dj hópsins 5th platoon ásamt Vinroc, Roli Rho og fleirum.
Á hiphop 90,s tímabilinu tóku þeir þátt i ófáum keppnum og kepptu við menn eins og Rob Swift, Roc Raida, A-Trak ofl.
Frá því að hafa komið fram sem tæknískur plötusnúður og unnið keppnir byrjaði hann að spila og koma fram á undan böndum eins og De La Soul, The Roots, Company Flow og Kanye West svo eitthvað sé nefnt.

Síðastliðin níu ár hefur hann heldur betur sett sitt innlegg í svokallaða mixtape menningu og fengið góða dóma hjá blöðum eins og Vibe, Rolling Stone, Urb og Complex.

Neil hefur spilað víða um allan heim bæði í klúbbum og hátíðum.
Hann var valinn sem plötusnúður fyrir NBA rookie shotout frá 2006-2008 og árið 2008 kom hápunkturinn í ferli Neils.
Á milli 2008-2010 varð DJ Neil Armstrong tour dj JAY-Z.
Hitaði upp og spilaði með JAY-Z á tónleikum fyrir framan allt að 100.000 manns.

Eftir þessa miklu reynslu hefur hann komið fram á tónleikum með Beyonce, NERD, Swizz Beats, Timbaland, Common, Coldplay, Puff Daddy og fleirum.


Honum til halds og traust verða engir aðrir en Jay-O og Benni B-Ruff

Veislan byrjar kl 23 og aðgangseyrir er 0 kr

Meðlimir í Technis geta nýtt sér svakalegt tilboð á barnum 3 fyrir 1 á milli 24.00-01.00

Hægt er að skoða viðburðinn á FB:

http://www.facebook.com/event.php?eid=293138290705107

 

Joomla 1.6 Templates designed by Joomla Hosting Reviews