.

Golfmót og salarpartý

Category: Fréttir
Published on Thursday, 08 September 2011

Golfmót og salapartý á morgun 9.sept

Þá er komið að því að Technismeðlimir og Pragmameðlimir skelli sér í sín flottustu golf föt og etji kappi við félaga sína í golfi.

Að þessu sinni fer mótið fram á Ljúflingnum 9 holu velli þeirra Oddfellowmanna.

Fyrirkomulagið er Texas scramble og verður raðað í lið eftir forgjöf. Því er mikilvægt að allir skrái sína forgjöf (séróskir um lið sendist á JLIB_HTML_CLOAKING ).

Verð er 2500 krónur sem er gjöf en ekki gjald!


Eftir golfmótið verður haldið alvöru salapartý! Partýið fer fram í sal sem staðsettur er í Go Kart brautinni í Garðabæ. Sameiginlegt partý með Pragma

Í partýinu munum við selja litla bjóra á kostnaðarverði á meðan birgðir endast en að sjálfsögðu geta allir komið með sitt eigið áfengi!

Viljum vekja athygli á því að þeir sem eru ekki félagsmenn Technis eða Pragma geta að sjálfsögðu mætt í partýið en þeir þurfa að borga 500 krónur við innganginn ! ( IN CASH)

 

 

Hlökkum til að sjá ykkur á föstudaginn!

Djammkveðjur

Technis og Pragma

Joomla 1.6 Templates designed by Joomla Hosting Reviews