Gulleggiđ 2010 - hugmyndasamkeppni Innovit og samstarfsháskóla.
19. janúar 2010 - Benedikt Bergmann Arason (Formađur)


Frumkvöðlakeppni Innovit er tækifæri fyrir frumkvöðla til að öðlast reynslu, þekkingu og tengslanet til að koma sínum hugmyndum á framfæri og vinna að stofnun nýrra og öflugra fyrirtækja á Íslandi.

 

Allir nemendur við Háskólann í Reykjavík geta tekið þátt í keppninni sér að kostnaðarlausu þar sem HR er samstarfsskóli verkefnisins. Aðrir þurfa að greiða rúmar 50.000 krónur fyrir námskeið vilji þeir taka þátt. Nemendur senda inn hugmynd á www.gulleggid.is -  þátttakendur fá svo aðstoð við að búa til fullmótaða viðskiptaáætlun úr þeirri hugmynd með aðstoð sérfræðinga, meðal annars frá Innovit, KPMG, Fulltingi lögfræðiþjónustu og ýmsum afreksmönnum úr íslensku atvinnulífi.

Keppnin er haldin að fyrirmynd sams konar keppni við MIT háskóla í Bandaríkjunum og sambærilegra keppna á Norðurlöndunum sem kallast Venture Cup.

 

I. Hluti: Skráning og 1-2 blaðsíðna ágripi um viðskiptahugmynd er skilað inn. Skilafrestur: 20. Janúar.

 

II. Hluti: Fullmótaðri viðskiptaáætlun er skilað inn. Skilafrestur: 8. Mars.


III. Hluti: Rýnihópur sérfræðinga velur 10 bestu viðskiptaáætlanirnar að því gefnu að þær standist gæðakröfur Innovit. Þátttakendur kynna þær fyrir dómnefnd og fjárfestum. Kynningar fara fram 10. apríl 2010.


Verðlaun eru veitt fyrir tíu bestu
viðskiptaáætlanirnar og heildarverðmæti vinninga er metið yfir 3.000.000 íslenskra króna

 

Nánar er hægt að lesa um keppnina á www.gulleggid.is

  • Muna?

Ekkert á döfinni