SKÍĐAFERĐIN MIKLA
11. janúar 2010 - Benedikt Bergmann Arason (Formađur)


Nú er komið að hinni geisivinsælu Skíðaferð HR. Líkt og undanfarin ár verður 

farið til Akureyrar en ferðin verður 15. - 17. janúar næstkomandi. Rútur munu 

leggja af stað klukkan 9 á föstudeginum 15. janúar. Gist verður á gistiheimil 

Akureyrar. 

Rúturferðir verða svo í og úr fjallinu á meðan ferðinni stendur svo fólk þarf ekki að 

hafa áhyggjur af því að geta ekki æft plóginn!

Kollegar okkar í Háskólanum á Akureyri eru búnir að skipuleggja partýdagskrá:

Föstudagur: Kaffi Akureyri býður okkur í einkapartý frá 20:00 - 00:00 því þurfa 

nemendur að framvísa   skírteinum til þess að komast inn.
Tilboð á barnum verða stór bjór á 500 kr alla nóttina og svo er lukkuhjólið á 

1000 kr fram til miðnættis, en þar geturðu unnið allt að 6 bjóra ef þú ert heppinn. 

Ingó úr veðurguðunum kemur svo og spilar fyrir okkur frá 20:00 - 00:00.

Laugardagur: Kvöldið hefst á málsverði sem nemendafélögin sjá um að halda. 

Þar verður eitthvað um frían bjór. Sjallinn heldur háskólaball fyrir okkur og munu 

N3 og Siggi Gunnars spila eldheit lög frá 00:00 - 04:00, 20 ára aldurstakmark og 

1000 kr inn.
Tilboðin á barnum verða stór bjór á 500 kr og tópas og ópalskot á 550 kr til 02:00.


Áður en allt þetta húllumhæ byrjar ætlum við að kíkja í heimsókn í Vífilfell þar sem 

sem verður eflaust eitthvað um léttar veitingar :) Svo ætla nemendafélögin að 

bjóða upp á mat og bjór á Greifanum þegar við erum búin hjá Vífilfelli en það verður allt 

auglýst betur síðar.


Verð: 10.400 kr (innifalið rúta, gisting og matur á laugardeginum).

Einnig er í boði fyrir fólk að nýta sér eingöngu gistinguna eða rútuna.

Gistingin kostar þá 6.000kr.- og rútan kostar 4.400kr.- þannig að fólk getur valið.
Miðasala verður á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag milli 11 og 13 hjá matsalnum í nýju byggingunni.

  • Muna?

Ekkert á döfinni