Nýbygging HR
26. desember 2009 - Sigurđur Rúnar Birgisson (Gjaldkeri)

 

 

Nú fer senn að líða að því að við sameinumst flest undir eitt þak í nýrri byggingu 

Háskólans í Reykjavík í Vatnsmýrinni. Þessar myndir voru teknar 23.desember 

til að sýna ykkur framgang mála.

Á fyrstu myndinni er einn af tveimur fyrirlestrasölum sem líta svona út. 

Þetta verða stærstu salirnir í nýja húsnæðinu. 

Mikið er hinsvegar um smærri kennslustofur.


Photobucket

Þetta er gangurinn sem skilur að þá tvo vængi í húsinu sem eiga að opna fyrst. 

Ákveðið hefur verið að skýra vængina ákveðnum nöfnum og búið er að ákveða þau nöfn. 

Skólinn mun líklegast vilja tilkynna þau nöfn og verða  þau því ekki tilkynnt hér.


Photobucket

Einn af mörgum opnum rýmum innan skólans.


Photobucket

 

Í húsinu eru mörg göt líkt og þessi til að hleypa inn náttúrulegri birtu og brjóta upp bygginguna. 

Þarna er hægt að fara út og fá sér ferskt loft til að endurnæra heilann undir átök í lærdómi.

 

Photobucket

Opnu kennararýmin líta svona út. Búið er að flytja dót frá öllum kennurum í nýbygginguna 

en þeir eiga flestir eftir að koma sér fyrir á sínum starfsstöðvum.


Photobucket

Ein af mörgum smærri kennslustofum. Eins og þið sjáið er búið að raða upp borðum og 

stólum þarna eins og í margar aðrar stofur og bíða þær því tilbúnar eftir kennurum og nemendum.


Photobucket

Miðjugangurinn þar sem horft er inn að hjarta hússins.


Photobucket

Eins og þið vitið þá verður hjarta hússins ekki tilbúið fyrr en næsta haust en það er 

komið nokkuð áleiðis.


Photobucket

Við viljum þakka ykkur nemendum og félagsmönnum Technis fyrir árið sem er að líða og 

óskum ykkur gleði og gæfu á komandi ári.


Með bestu kveðju fyrir hönd stjórnar Technis,

Sigurður Rúnar Gjaldkeri Technis.

  • Muna?

Ekkert á döfinni