Þá er komið að því!
Hin árlega karla og kvenna ferð Technis verður farin
laugardaginn 7. nóvember 2009.
Karlarnir mæta í anddyrið við aðalinnganginn upp á Höfðabakka klukkan
13:00 og eiga þeir að hafa með sér íþróttaföt, sundföt, úti föt og djamm föt.
Konurnar mæta klukkan 12:00 í anddyrið við aðalinnganginn upp á Höfðabakka, og þurfa að
hafa með sér íþróttaföt, sundföt, djamm föt og aðrar tilheyrandi græjur.
Deginum lýkur á Players þar sem við fáum að borða og Sniglabandið mun halda uppi fjörinu.
Þessi atburður kostar einungis 2500 krónur sem greiðist við mætingu í ferðina og er
það gjafaverð fyrir alla þá skemmtun sem verður þennan dag.
Skráning hefst á www.techn.is miðvikudaginn
4. Nóvember klukkan 14:00.
Ath. einungis fyrir meðlimi Technis