.
Vísó í EFLU
Næstkomandi föstudag verður farið í vísindaferð í Eflu!!!!
EFLA starfrækir dóttur- og hlutdeildafélög í Noregi, Rússlandi, Frakklandi, Póllandi, Tyrklandi og Dúbaí. Efla er mjög vinsæl vísindaferð, enda um stæðstu verkfræðistofu landsins að ræða. Fremstir í sínu fagi.
Efla ætlar að kynna starfsemi sína og að sjálfsögðu bjóða upp á léttar veitingar. Eftir kynninguna verður farið í bæinn með rútu á vegum Technis.
Fólk er hvatt til að skrá sig sem fyrst þegar skráning opnar kl.14.oo í dag!!!!
Nánari upplýsingar eru inn á Myschool.
Kv. Stjórn Technis
Handbolta Bjórkvöld
Núna er komin tími til að starta þessari önn!
Næstkomandi föstudag er Handbolta bjórkvöld á Glaumbar.
Kl.17.10 er leikur ÍSLANDS á móti Sloveníu.
Þar munu nemendafélögin TECHNIS og MENTES bjóða upp á frían bjór á meðan leik stendur
Eftir það er bjórinn á ekki nema 290 kr gegn því að sýna nemendafélagsskírteini.
Vonumst til að sjá sem flesta
Áfram ÍSLAND, Technis og Mentes.
Dj Neil Armstrong (New York) á Vegamótum!
Fáranlega gott partý á Vegamótum í kvöld kl 23.00
Dj Neil Armstrong (New York) verður að spila á Vegamótum!
(Former tour dj JAY-Z)
Armstrong er einn af stofnendum dj hópsins 5th platoon ásamt Vinroc, Roli Rho og fleirum.
Á hiphop 90,s tímabilinu tóku þeir þátt i ófáum keppnum og kepptu við menn eins og Rob Swift, Roc Raida, A-Trak ofl.
Frá því að hafa komið fram sem tæknískur plötusnúður og unnið keppnir byrjaði hann að spila og koma fram á undan böndum eins og De La Soul, The Roots, Company Flow og Kanye West svo eitthvað sé nefnt.
Síðastliðin níu ár hefur hann heldur betur sett sitt innlegg í svokallaða mixtape menningu og fengið góða dóma hjá blöðum eins og Vibe, Rolling Stone, Urb og Complex.
Neil hefur spilað víða um allan heim bæði í klúbbum og hátíðum.
Hann var valinn sem plötusnúður fyrir NBA rookie shotout frá 2006-2008 og árið 2008 kom hápunkturinn í ferli Neils.
Á milli 2008-2010 varð DJ Neil Armstrong tour dj JAY-Z.
Hitaði upp og spilaði með JAY-Z á tónleikum fyrir framan allt að 100.000 manns.
Eftir þessa miklu reynslu hefur hann komið fram á tónleikum með Beyonce, NERD, Swizz Beats, Timbaland, Common, Coldplay, Puff Daddy og fleirum.
Honum til halds og traust verða engir aðrir en Jay-O og Benni B-Ruff
Veislan byrjar kl 23 og aðgangseyrir er 0 kr
Meðlimir í Technis geta nýtt sér svakalegt tilboð á barnum 3 fyrir 1 á milli 24.00-01.00
Hægt er að skoða viðburðinn á FB:
http://www.facebook.com/event.php?eid=293138290705107
Leikhústilboð fyrir meðlimi Technis
Okkur langar að bjóða meðlimum Technis tilboð á sprenghlægilegu uppistandi Önnu Svövu.
Leikkona: Anna Svava Knútsdóttir
Leikstjóri: Gunnar B. Guðmundsson
Almennt miðaverð er 2500kr. Tilboð til meðlima Technis 1800kr. Til að virkja tilboðið þarf að panta miða í gegnum netfangið JLIB_HTML_CLOAKING og nefna "Technis" tilboð.
Sýningar: 4.sýning: Föstudaginn 18.nóv kl 21.00
5. sýning :Föstudaginn 25.nóv kl 21.00
Gaflaraleikhúsið er á strandgötu 50 Hafnafirði, fyrir utan Fjörukrána. Húsið opnar kl. 20.30.
Miðapantanir eru á netfangið JLIB_HTML_CLOAKING
Kv.Technis
NOVA
Vísindaferð í NOVA á föstudaginn kl.18.30.
Aðeins 30 manns komast í þessa ferð. Mæting verður upp í Lágmúla 9, kl.18.30. Þetta er seinasta vísindaferð fyrir próf og tilvalið að skella sér í eina af bestu vísindaferðum sem farið verður í. Nóg af veitingum.
Skráning hefst á Miðvikudag á Myschool og geta Technismeðlimir aðeins skráð sig.
ATH! Fólk sem er nýbúið að borga gjöldin verða að láta vita svo hægt sé að skrá sig í ferðir á vegum Technis.
kv. Stjórnin







